Heildræn nálgun að betri heilsu
Sigríður María heiti ég og starfa sem næringaþerapisti. Mín ástríða er að styðja fólk til betri heilsu með vísindalega nálgun og einstaklingsmiðaða þjónustu að leiðarljósi. Sem næringaþerapisti starfa ég á heildrænan hátt með áherslu á að greina undirliggjandi ójafnvægi og styðja við langtímaheilsu viðskiptavina minna.
Ég býð upp á persónulega næringar- og lífstílsráðgjöf sem miðar að því að leiðbeina einstaklingum á þeirra vegferð að bættri heilsu. Ég legg áherslu á að kynnast viðskiptavinum mínum, hjálpa þeim að skilja hvernig líkaminn starfar og greina hvar mögulegt ójafnvægi kann að liggja.
Í ráðgjöf minni tek ég mið af mataræði, rannsóknarniðurstöðum, lífsstíl og umhverfi. Ég nýti mér einnig ýmis próf sem veita dýpri innsýn í starfsemi líkamans. Má þar nefna próf sem geta gefið vísbendingar um orsakir orkuleysis, bólgu, meltingarvandamála, hormónatengdra áskorana og erfðabreytileika. Ég styðst fyrst og fremst við næringu, bætiefni og lífsstílsbreytingar til að stuðla að auknu jafnvægi og betri langtímaheilsu.
Ég trúi því að líkaminn hafi ótrúlega getu til að ná jafnvægi þegar hann fær réttan stuðning. Því legg ég áherslu á að hjálpa fólki að finna rót heilsuvandans og skapa varanlegar breytingar í gegnum næringu og lífstíl.
Stakt viðtal
Heilsuprógramm 1
8 vikna prógramm sem veitir þér þekkingu og stuðning til að ná heilsumarkmiðum þínum.
Heilsuprógramm 2
4 vikna prógramm sem veitir þér þekkingu og stuðning til að ná heilsumarkmiðum þínum.
Langar þig að vita hvernig genin þín bregðast við næringu, mataræði og öðrum heilsutengdum þáttum?
Hver líkami er einstakur og getur brugðist mismunandi við næringu, hreyfingu og öðrum lífsstílsþáttum. Næringarerfðafræði skoðar hvernig genin okkar hafa áhrif á hvernig líkaminn bregst við þessum þáttum. Með því að greina litlar erfðabreytingar, kallaðar SNPs (einsbasabreytileikar), má meðal annars sjá hvernig líkaminn notar næringarefni, framleiðir hormón, hvernig afeitrun fer fram og hvernig orku- og orkustig þróast. Þessar breytingar valda ekki sjúkdómum einar og sér, en geta haft áhrif á heilsu, orkustig og líðan.
Með erfðaprófi getur þú fengið góða innsýn í styrkleika og veikleika þíns líkamans og þannig betur séð hvaða næring, hreyfing og lífsstíll hentar þér best.
Ég býð upp á mismunandi ,,genapakka” sem skoða allt frá næringu og almennri heilsu til hormóna, frjósemi og hreyfigetu.

